Minnum á okkar mánaðarlega opna hús, fyrsta mánudag í hverjum mánuði, kl.19,30-21.
Umhyggja hefur gert samning við KVAN um að halda sjálfstyrkingarnámskeið fyrir systkini langveikra barna og verða námskeiðin niðurgreidd að langstærstum hluta af Umhyggju. Um er að ræða 8 vikna námskeið, 2,5 tíma í senn, og er hópunum skipt í 10-12 ára og 13-15 ára. Fyrra námskeiðið, fyrir 10-12 ára, fer af stað 21. nóvember og verður kennt á milli kl.16 og 18.30. Það síðara, ætlað 13-15 ára, fer svo af stað 14. janúar og er kennt milli 18.30 og 21.
Hér eru tveir hlekkir inn á skráningarsíður þar sem einnig koma fram allar helstu upplýsingar um námskeiðið.
https://kvan.is/product/sjalfsstyrkingarnamskeid-umhyggju-og-kvan- (10-12 ára)
https://kvan.is/product/sjalfsstyrkingarnamskeid-umhyggju-og-kvan-fyrir-13-15-ara-hefst-14januar (13-15 ára)
Heilbrigðisþing verður haldið þann 2. nóvember nk. frá klukkan 9 til 16 á Grand hótel, Reykjavík. Markmið þingsins er að skapa vettvang fyrir kynningu og umræður um drög að nýrri heilbrigðisstefnu, stefnu fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi til ársins 2030. Þingið er öllum opið og eru allir sem láta sig heilbrigðismál varða hvattir til að taka þátt. Skráning fer fram á www.þing.is. Til að tryggja aðgengi allra landsmanna að þinginu verður dagskrá og umræðum streymt á slóðinni www.heilbrigdisthing.is þar sem einnig verður hægt að senda inn spurningar og ábendingar.
Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna kemur fram að börn og unglingar eiga rétt á að láta skoðun sína í ljós og segja hvað þeim finnst. Þess vegna ætlar umboðsmaður barna að vera með sérfræðihópa fatlaðra barna og unglinga. Þetta er gert til að umboðsmaður fái upplýsingar um það sem fötluðum börnum og unglingum finnst mikilvægt og til að fá ábendingar þeirra og tillögur um það sem má gera betur.
Við erum að leita eftir þátttakendum í sérfræðihópana, strákum á aldrinum 12 til 15 ára og stúlkum á aldrinum 15 til 18 ára.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt eða ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verkefnið hafðu þá samband við Hrafnhildi Snæfríðar- og Gunnarsdóttur, verkefnastjóra, í síma 5254176 / 694-3264 eða sendu vefpóst á hsg@hi.is.
Einnig er hægt að hafa samband við umboðsmann barna í síma 800-5999 (gjaldfrjálst númer) eða með tölvupósti á ub@barn.is
Landssamtökin Þroskahjálp, Umhyggja – félag langveikra barna
og Einhverfusamtökin boða til fundar um stöðu og réttindi fatlaðra og langveikra barna með tvö heimili.
Aðstandendur fatlaðra og langveikra barna með tvö heimili eru hvattir til að mæta, en markmið fundarins er að heyra í þeim varðandi aðgengi að stuðningsþjónustu, hjálpartækjum og upplýsingum frá skólum, félagsþjónustu og öðrum þjónustuveitendum.
Miðvikudag 17.október kl.17-19
Háaleitisbraut 13, 4 hæð
Brynhildur Lea Ragnarsdóttir hefur skrifað BA ritgerð í sagnfræði við Háskóla Íslands um flogaveiki fyrr á öldum: https://skemman.is/bitstream/1946/26951/1/Flogaveikifyrráöldum.pdf
Opið hús eins og vanalega fyrsta mánudaginn í mánuðinum.
Þar sem flestir fastagestir eru núna á námskeiðinu hjá Gunnhildi verðum við ekki með neina dagskrá á opna húsinu á meðan, bara óformlegt spjall.
Skrifstofan verður lokuð mánudaginn 1.október, þar sem starfsmaðurinn ætlar að taka sér smá auka frí.
Námskeið í djúpslökun
Á námskeiðinu verður farið í þætti sem virka við streitutengdum einkennum.
Kenndar verða aðferðir til að dýpka öndun, íhugun (mind fulness) og sjálfsdáleiðslu.
Farið verður yfir mikilvægi innra samtals og hvernig maður styrkir sjálfsmynd sína og innsæi.
Góð slökun og öndunaræfingar auka blóðflæði líkamans, bæta svefn, losa um kvíða og þunglyndi og koma í veg fyrir bólgutengd einkenni.
Námskeiðið hefst 24.september og fer fram í Setrinu Hátúni 10 milli kl. 17.30 – 19.00 - fjögur skipti.
Skráning fer fram á netfanginu gunnhildur@vinun.is
Námskeiðið er haldið í samvinnu LAUF, Parkinsonsamtakanna og Félags nýrnasjúkra og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Eldri fréttir
-
Frábært tilboð til fjölskyldna langveikra barna
-
Ráðstefna ÖBÍ um atvinnuþátttöku fatlaðs fólks
-
Könnun frá nemendum við HR
-
Málþing kjarahóps ÖBÍ
-
Opið hús í maí
-
Hugmyndafundur ungs fólks
-
Árspassi að MasterClass
-
Aðalfundur ársins 2022
-
Námskeið Systkinasmiðjunnar
-
Páskafrí á skrifstofunni
-
Opið hús mánudaginn 4.apríl
-
Sumarhús Umhyggju
-
Áhugaverð ráðstefna - allir velkomnir
-
Fundaherferð ÖBÍ fyrir sveitarstjórnarkosningar
-
Reykjavíkurmaraþon 2022
-
Opið hús mánudag 7.mars