Í október ætlum við að fara í þrjár laugardagsgöngur.
Laugardagana 1.okt + 15.okt + 29.okt, klukkan 10 - ca 11,30
Gönguleiðtogi er Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir, stjórnarkona hjá LAUF.
Í fyrstu göngunni, þann 1.okt, hittumst við hjá Perlunni og löbbum um Öskjuhlíðina.
Eins og alltaf verður opið hús fyrsta mánudaginn í október, þann 3.okt, kl 19,30-21, í sal félagsins að Hátúni 10.
Heiðrún og Bryndís kynna BA verkefni sitt við HÍ, þar sem þær fjalla um mikilvægi tómstundaiðkunar fyrir öryrkja.
Kaffi, gos og nammi.
LAUF býður í sögugöngu um miðbæinn, fimmtudaginn 22.september kl 17.
Leiðsögumaður er Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Safnast saman við Ráðhúsið og lagt af stað kl 17
Heilsumolar eru örmyndbönd með góðum ráðum um hvað hægt er að gera til að bæta heilsu og líðan og eiga erindi við allan almenning. Að taka ábyrgð á eigin heilsu hefst á því að vita hvað er heilsusamlegt. Hvert myndband svarar því mikilvægri spurningu varðandi svefn,streitu, mataræði eða hreyfingu.
Það sem við ætlum að gera hjá LAUF haustið 2022
Fimmtudagur 22/9 kl 17, Söguganga um miðbæinn, með Stefáni Pálssyni sagnfræðingi
Laugardagur 1/10 Gönguferð um Öskjuhlíð með Heiðrúnu
Mánudagur 3/10 kl 19,30 opið hús, Heiðrún og Bryndís kynna BA verkefni við HÍ, um mikilvægi tómstundaiðkunar fyrir öryrkja
Laugardagur 15/10 Gönguferð með Heiðrúnu
Laugardagur 29/10 Gönguferð með Heiðrúnu
Mánudagur 7/11 kl 19,30 opið hús, Siggi Jóhannsson ræðir um virkni CBD olíu við einkennum taugasjúkdóma
Mánudagur 5/12 kl 19,30 opið hús, jóla dagskrá
Annað sem á eftir að setja á dagsetngar:
· Námskeið hjá Gunnhildi, slökun og öndun
· Framleiðsla podcast þátta um flogaveiki og lífið með henni
· Opið hús sérstaklega ætlað foreldrum barna með flogaveiki
LAUF býður í sögugöngu, allir velkomnir!
Söguganga um miðborgina fimmtudaginn 22.september kl 17.
Létt og skemmtileg fræðsluganga um Kvosina og umhverfi Tjarnarinnar með Stefáni Pálssyni sagnfræðingi. Safnast saman við Ráðhús Reykjavíkur.
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshúsin Brekkuskógi og Vaðlaborgum yfir jól eða áramót. Húsin eru leigð annars vegar frá 23/12 – 28/12 og hins vegar 28/12-2/1 svo að fjórar fjölskyldur fái að njóta.
Umsóknarfrestur rennur út 1. október og verða allar umsóknir teknar til skoðunar þá. Úthlutun mun liggja fyrir í kringum 10. október.
Sjá frétt af vefsíðu hér: https://www.umhyggja.is/is/frettir/enginn-titill-3
Hægt er að sækja um hér: https://www.umhyggja.is/is/umsokn-um-orlofshus-jol-eda-aramot
Góðan og blessaðan daginn,
Halldóra heiti ég og er markþjálfi Umhyggju. Mig langar til að fá að segja ykkur stuttlega frá því hvað markþjálfun er og hvernig hún getur nýst fyrir félagsmenn ykkar. Einnig langar mig til að leita til ykkar, ég væri svo þakklát ef hægt væri að láta félagsmenn ykkar vita af þessari þjónustu sem hægt er að sækja til Umhyggju. En allir aðildarfélagar Umhyggju geta fengið alls fimm stykki markþjálfasamtöl sér að kostnaðarlausu í boði Umhyggju.
Svo það er um að gera að nýta sér það! Hér fyrir neðan er að sjá upplýsingar um það hvað markþjálfun er og hvernig hún getur nýst fólki. Fyrirfram þakkir og góða helgi! ☺️
Hvað er markþjálfun?
Markþjálfun hjálpar fólki að leita svara inn á við með áhugahvetjandi samtalstækni. Aðferðarfræðin og þau verkfæri sem markþjálfi nýtir í samtalinu getur nýst fólki vel til þess að takast á við hið daglega amstur hversdagsleikans. Undanfarið eitt og hálfa árið sem ég hef starfað hjá Umhyggju hafa leitað til mín skjólstæðingar með alls konar mismunandi erindi og náð góðum árangri á skjótum tíma.
Hvernig getur markþjálfun hjálpað þér?
Þrátt fyrir að verkefnin heima séu stór, flókin og krefjandi, þá er hægt að finna leiðir til að lifa eftirsóknarverðara og hamingjuríkara lífi. Ég skil svo vel hversu flókið það er að vilja kom inn í strembna stundarskrá dagsins einhverju eins og, "sinna sjálfinu betur”, sinna hinum börnum heimilisins betur og/eða hjónalífinu, svo eitthvað sé nefnt, eigandi fjölfatlað og langveikt barn sjálf. Það eru hins vegar til lyklar sem leysa örlítið úr flækjunni og þá lykla hefur þú að geyma! Eigum við að prófa kafa eftir þeim í sameiningu? Kíktu til mín í tíma og við skulum sjá hvað gerist?
Hér er hægt að sjá lista yfir nokkur að þeim viðfangsefnum sem tekin hafa verið fyrir í tímum hjá mér.
*Viltu auka andlegan styrk þinn?
* Vantar þig stuðning, hvatningu eða pepp við næstu skref lífsins?
* Finnst þér erfitt að byrja hreyfa þig og að koma hreyfingu í rútínu?
* Viltu bæta daglega og persónulega tímastjórnun?
* Vantar þig hugarró og betri fókus á daglegt líf?
* Viltu finna tilganginn þinn og/eða ástríðu?
* Vantar þig tíma til þess að sinna þèr?
* Vantar þig verkfæri til að auka jákvætt hugarfar?
*Viltu fá meiri gleði inn í líf þitt?
* Fá trú á þèr?
* Bæta svefninn þinn?
*Bæta sjálfstraustið þitt?
* Viltu bæta hjónalíf þitt?
* Viltu betri tengsl við börnin þín?
Hægt er að óska eftir markþjálfunarviðtali með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan:
https://www.umhyggja.is/is/um-felagid/markthjalfun
Ég hlakka til að hitta þig!☺️
Hlýjar kveðjur,
Halldóra Hanna Halldórsdóttir
Markþjálfi Umhyggju
- Einkaþjálfun hugans -
S. 692-9027
Opið hús, 5.sept kl 19,30-21, í húsnæði félagsins Hátúni 10.
Komum saman, spjöllum, deilum reynslu, sýnum stuðning.
Hér má sjá hvernig fólkinu okkar gekk að safna styrkjum.
Enn er hægt að styrkja ef einhverjir vilja bæta við.
https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/441-lauf-felag-flogaveikra
Skrifstofa félagsins er lokuð miðvikudaginn 17.ágúst vegna sumarleyfis.
Eldri fréttir
-
Skrifstofan lokuð vegna flutninga
-
Opið hús fyrir foreldra barna með flogaveiki
-
Nýtt Umhyggjublað
-
Sumarhús Umhyggju, umsóknir fyrir páskana
-
Jólalokun skrifstofu
-
Jólalokun skrifstofu
-
Opið hús í janúar, fyrir foreldra barna með flogaveiki
-
Ókeypis gisting í desember og janúar, fyrir fjölskyldur
-
Jóla opið hús, 12,des
-
Skrifstofan lokuð vikuna 5.-9.des
-
Heilsumolar SÍBS
-
Umhyggjuhöllin
-
Systkinasmiðja Umhyggju
-
Íþróttaskóli ÍFR
-
Næst á dagskrá hjá LAUF
-
Systkinasmiðja í Reykjavík