• Forsíða
  • Fréttir
  • Um Samtökin
    • Um Samtökin
    • Æskulýðs- og fræðslusjóður LAUF
    • Ráðgjöf
    • Gerast félagi
    • Styrkir til LAUF
    • Fræðsla og útgáfa
    • Samstarf við Olís
    • Útgefið efni
    • Sundlaugaverkefnið
    • Áhugaverðar síður
    • Minningarkort
    • Skrá á póstlista
    • Hafa Samband
    • Lög félagsins
  • Um flogaveiki
    • Um flogaveiki
    • Frá Gunnhildi ráðgjafa
    • Hvað er flogaveiki?
      • Greining á flogaveiki
      • Orsakir flogaveiki
      • Helstu gerðir floga
      • Aldraðir
      • Horfur
    • Börn & flogaveiki
      • Foreldrar & börn
      • Hafið í huga
      • Skólaganga
      • Ráð til kennara
      • Krampakast & ráðvilluflog
      • Hitakrampar
      • Köst barna undir 5 ára
      • Rannsókn
    • Greinar
    • Fyrsta hjálp við flogum
    • Meðferð
      • Lyfjameðferð
      • Skurðaðgerðir
      • Önnur meðferð
    • Daglegt líf
      • Takast á við lífið
      • Upplýsa um flogaveiki
      • Samband þitt og læknis
      • Sjálfsstjórn
      • Ökuréttindi
      • Áfengi
    • Spurningar & svör
  • Myndagallerý
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Myndagallerý
  • Um Samtökin
    • Um Samtökin
    • Æskulýðs- og fræðslusjóður LAUF
    • Ráðgjöf
    • Gerast félagi
    • Styrkir til LAUF
    • Fræðsla og útgáfa
    • Samstarf við Olís
    • Útgefið efni
    • Sundlaugaverkefnið
    • Áhugaverðar síður
    • Minningarkort
    • Skrá á póstlista
    • Hafa Samband
    • Lög félagsins
  • Um flogaveiki
    • Um flogaveiki
    • Frá Gunnhildi ráðgjafa
    • Hvað er flogaveiki?
    • Börn & flogaveiki
    • Greinar
    • Fyrsta hjálp við flogum
    • Meðferð
    • Daglegt líf
    • Spurningar & svör
  • robert-wnuk-8261

    LAUF

    Félag flogaveikra, var stofnað í mars árið 1984.

    Í samtökunum er fólk með flogaveiki, fjölskyldur þeirra, vinir, heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem hafa áhuga á málefnum fólks með flogaveiki.

Minningarkort

14. maí 2008
Nú eru hægt að senda minningarkort frá heimasíðunni okkur. Smelltu hér til að lesa nánar um minningarkortin.
Lesa meira

Ráðstefna um flogaveiki í Frakklandi fyrir þig!

8. maí 2008
11. Evrópuráðstefnan um flogaveiki og samfélag verður að þessu sinni haldin í Marseille í Frakklandi dagana 15-17 október 2008. Um er að ræða mjög áhugverða ráðstefnu þar sem fjallað veður um flogaveiki og áhrif hennar á börn og fullorðna. Á heimasíðu ráðstefunnar má sá dagskrána og hvaða fyrirlestrar verða í boði. Við hvetjum fólk til að mæta og kynna sé hvað er að gerast í málefnum flogaveikra. Einnig til að hitta aðra og deila sameiginlegri reynslu.

Lesa meira

Minningarkort Laufs

30. apríl 2008

Minningarkort Laufs

Við viljum vekja athygli á að hjá Laufi eru til minningarkort. Ef fólk vill minnast látinna ástvina með því að senda minningarkort og styrkja þannig um leið starfsemi Laufs. Til að senda minningarkort þarf að hafa sambandi við skrifstofu Laufs í síma 551-4570.

Lesa meira

35 Íslendingar hlaupa til styrktar flogaveikum börnum í Boston-maraþoni

21. apríl 2008

Vilja varpa ljósi á flogaveiki

Styðja við fræðsluverkefni LAUF
"Ég á flogaveika dóttur og fannst mér bera skylda til að vekja athygli almennings á þessum alvarlega sjúkdómi, koma flogaveikinni úr skugganum," segir Sigrún Erlendsdóttir sem næstkomandi mánudag mun, ásamt 34 hlaupafélögum sínum, hlaupa maraþon í Boston í Bandaríkjunum til styrktar flogaveikum börnum og Landssambandi áhugafólks um flogaveiki, LAUF.

Lesa meira

Nordjobb

18. apríl 2008

Ert þú með fötlun og vilt bætast í hóp þeirra sem vinna á Norðurlöndunum.

Nordjobb óskar eftir því að fá fleira fólk með fötlun á vinnumarkað Norðurlandanna, þess vegna viljum við reyna að útvega þér sumarstarf. 

Nordjobb getur boðið þér sumarstarf, húsnæði og áhugverða frístundadagskrá, ef þú ert á milli 18 og 28 ára og hefur vald á sænsku, norsku eða dönsku.

Upplifðu sumar á Norðurlöndunum - sæktu um Nordjobb í dag!

www.nordjobb.net/jobbtillalla.html 

Lesa meira

Náms- og starfsendurhæfing

9. apríl 2008
Hringsjá veitir endurhæfingu til náms og starfa. Hringsjá er ætluð einstaklingum eldri en 18 ára, sem vegna heilsufarsvanda, fötlunar, áfallasögu og/eða félagslegra aðstæðna hafa ákveðið að endurmeta og styrkja stöðu sína og að efla persónulega færni.

Fullt nám er 3 annir
Inntaka í fullt nám fer fram tvisvar á ári
Umsóknarfrestur fyrir haustönn er til 16. maí 2008.

Lesa meira

Grein úr Morgunblaðinu 27. mars 2008

2. apríl 2008

Mikilvægt að fá strax fræðslu um sjúkdóminn

„Hræðileg upplifun að sjá barnið sitt fá flogakast og vita ekkert hvað er í gangi,“ segir móðir níu ára flogaveiks drengs.

Fyrir þremur árum fór sonur minn í nefkirtlatöku og þegar hann kom heim úr henni fékk hann fyrsta flogakastið,“ segir Thelma Björg Brynjólfsdóttir, en sonur hennar og Said Lakhlifi Mickael Ómar, er nú níu ára gamall. Fyrsta flogið var stórt, „og þar með hófst hans sjúkrasaga,“ segir Thelma.
Lesa meira

Grein úr Morgunblaðinu 27. mars 2008

2. apríl 2008

Ranghugmyndir upprættar

„Það er mjög mikilvægt að foreldrar fái fræðslu um flogaveiki strax og barn þeirra er greint flogaveikt,“ segir Pétur Lúðvigsson, barnalæknir á Barnaspítala Hringsins. „Margir eru með ranghugmyndir um flogaveiki, alls konar fordómar eru í gangi sem mikilvægt er að eyða svo fólk geti horft á sjúkdóminn réttum augum.“
Lesa meira

Grein úr Morgunblaðinu 27. mars 2008

2. apríl 2008

Fræða börn með flogaveiki og foreldra þeirra

Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is

Árlega greinast um fimmtíu börn yngri en átján ára með flogaveiki hér á landi. Fyrstu skrefin eftir slíka greiningu geta verið börnunum og aðstandendum þeirra erfið og á stuttum tíma þarf fólk að tileinka sér mikla þekkingu á sjúkdómi sem það áður hefur jafnvel haft litla sem enga vitneskju um.
Lesa meira

Nýtt Laufblað

28. mars 2008
Jæja nú er komið út fyrsta tölublað Laufblaðsins 2008 og ætti það að berast öllum félagsmönnum á næstu dögum. Fljótlega mun eintak af blaðinu vera aðgengilegt hér á síðunni.
Lesa meira

Aðalfundur

28. mars 2008
Aðalfundur Laufs, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki verður haldinn laugardaginn 5. apríl 2008 að Grand hótel Sigtúni 38 Reykjavík, í sal sem heitir Lundur. Fundurinn hefst klukkan 11:00.
Aðalfundarboð hafa verið send til allra félagsmanna ásamt nýjum bæklingi sem félagið er að kynna. Bæklingurinn heitir "Við viljum sjást" og fylgir armband með. Þetta átak er gert til að auka þekkingu á flogaveiki og efla öryggi flogaveikra í sundi.
Ef þú félagsmaður góður hefur ekki fengið fundarboðið í hendur vinsamlegast hafðu þá samband við okkur á skrifstofunni.
Lesa meira

Þakkir

28. mars 2008
Sjálfboðasamtök hafa í gegnum tíðina veitt fjölbreytilega og mikilvæga þjónustu fyrir ýmsa hópa samfélagsins, barist fyrir hagsmuna- og réttindamálum og virkjað fólk til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi. Sjálfboðastörf eru ekki einungis spurning um val einstaklinga, heldur hefur söguleg þróun og ytri samfélagsaðstæður haft mikil áhrif á hvernig umfang, skipulag og samsetning þessa sviðs er í mismunandi velferðarkerfum. Sum samfélög standa þétt við bak slíkra samtaka og hafa með ríkulegum fjárframlögum, gert þeim kleift að sinna margvíslegri samfélagslegri þjónustu, sem ekki hefur verið á færi annarra að veita. Sum samtök reiða sig á velvild einstaklinga og fyrirtækja sem með fjárframlögum og öðrum stuðningi gerir þeim kleift að koma málefnum sínum á framfæri og vinna að hagsmuna- og réttindamálum sinna félaga. Því er það ómetanlegt og sérstaklega þakkarvert þegar fyrirtæki sína frumkvæði í að styðja starf sjálfboðasamtaka.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Frábært tilboð til fjölskyldna langveikra barna
    18. maí 2022
  • Ráðstefna ÖBÍ um atvinnuþátttöku fatlaðs fólks
    9. maí 2022
  • Könnun frá nemendum við HR
    4. maí 2022
  • Málþing kjarahóps ÖBÍ
    4. maí 2022
  • Opið hús í maí
    28. apríl 2022
  • Hugmyndafundur ungs fólks
    20. apríl 2022
  • Árspassi að MasterClass
    20. apríl 2022
  • Aðalfundur ársins 2022
    20. apríl 2022
  • Námskeið Systkinasmiðjunnar
    20. apríl 2022
  • Páskafrí á skrifstofunni
    6. apríl 2022
  • Opið hús mánudaginn 4.apríl
    4. apríl 2022
  • Sumarhús Umhyggju
    30. mars 2022
  • Áhugaverð ráðstefna - allir velkomnir
    30. mars 2022
  • Fundaherferð ÖBÍ fyrir sveitarstjórnarkosningar
    28. mars 2022
  • Reykjavíkurmaraþon 2022
    7. mars 2022
  • Opið hús mánudag 7.mars
    7. mars 2022
  • lauf@vortex.is
  • 551 4570