Skip to main content
Fréttir

Námskeið fyrir ungt fólk

By 2 október 2024No Comments

UngÖBÍ og KVAN bjóða í samstarfi upp á námskeiðið Framkoma á eigin forsendum fyrir félagsfólk aðildafélaga ÖBÍ réttindasamtaka á aldrinum 18-35 ára.

Á námskeiðinu verður farið yfir:

  • Sjálfstraust og hugrekki
  • Kynningartækni og framkomu
  • Samskipti út frá stryrkleikamiðaðri nálgun

 

Námskeiðið rúmar að hámarki 20 manns svo áhugasamir eru hvattir til að ganga frá skráningu fyrr en seinna.

 

Námskeiðið er kennt í 3 skipti, á miðvikudögum frá kl. 19-21. Kennt verður dagana 13. 20. og 27. nóvember í Marréttindahúsinu, húsnæði ÖBÍ að Sigtúni 42, 105 Reykjavík.

 

Þar sem ÖBÍ réttindasamtök niðurgreiðir langstærstan hluta kostnaðar er skráningargjald aðeins 2.500 krónur á þátttakanda.

Nánari upplýsingar og skráning má finna á heimasíðu KVAN í hlekknum hér að neðan:

https://kvan.is/events/framkoma-a-eigin-forsendum-obi-og-kvan-2/

 

Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar.