Skip to main content
Fréttir

Könnun um stöðu öryrkja

By 23 október 2023No Comments
TR hefur sent örorku- og endurhæfingarlífeyristökum sem og örorkustyrktökum tölvupóst þar sem kynnt er könnun sem Varða rannsóknastofnun vinnumarkaðarins framkvæmir fyrir ÖBÍ réttindasamtök. Það væri gott að sem flestir samþykki þátttöku, hafi viðkomandi fengið boð þar um.
Markmiðið með könnuninni er að afla upplýsinga um fjárhagsstöðu, heilsu, stöðu á húsnæðismarkaði, félagslega einangrun, fordóma og stöðu á vinnumarkaði hjá þeim sem eru með 75% örorkumat, eru á endurhæfingarlífeyri eða á örorkustyrk.
Þessar upplýsingar munu reynast afar mikilvægar í allri baráttu ÖBÍ réttindasamtaka fyrir bættum kjörum og réttindum fatlaðs fólks. Við hvetjum því öll til þess að taka þátt í könnuninni.
Þátttaka í könnuninni er valfrjáls en hún er nafnlaus og ekki verður hægt að rekja svör til svarenda. TR sér um útsendingu á póstinum og framsendir síðan hlekk á könnunina eingöngu til þeirra sem samþykkja þátttöku. Könnunin verður opin frá 25. október til 8. nóvember. Ítrustu persónuverndarsjónarmiða er gætt við útsendinguna og úrvinnslu könnunarinnar.