Skip to main content

Framsendi hér að neðan fréttatilkynningu sem fer í loftið í dag, en þau ánægjulegu tíðindi koma frá Umhyggju eru þau að Ásgarður, körfuknattleikshöll Stjörnumanna í Garðabæ, mun frá deginum í dag heita Umhyggjuhöllin. Allar frekar upplýsingar eru í fréttatilkynningunni um tilurð þessa, en Umhyggja mun hafa sérstaka glerstúku fyrir félagið og öll aðildarfélög Umhyggju til afnota í allan vetur. Við munum geta boðið þangað fjölskyldum langveikra barna, hvort heldur er í salinn eða í einkastúkuna, en inn í Umhyggjustúkuna er sér inngangur sem er mjög aðgengilegur fyrir hjólastóla auk þess sem börn sem e.t.v. þola ekki að vera innan um marga geta haft rými fyrir sig. Hugmyndin er að leikmenn geti líka komið þangað upp og heimsótt gestina sé þess óskað.

Það er okkar von að sem flest langveik börn sem tengjast Umhyggju eða aðildarfélögum með einhverjum hætti geti haft tækifæri til að njóta þessa nú í vetur. Að minnsta kosti tveir af leikjunum verða sérstakir að því leyti að það verða einhvers konar uppákomur fyrir krakka og verður það auglýst nánar þegar nær dregur. Einnig er Stjörnuliðið sem er í úrvalsdeildinni til í að koma og heimsækja langveik börn t.d. á spítala, skammtímavistunum, skólum, félögum o.fl. eftir því sem við á eða ef eftir því er óskað – endilega hafið það í huga ef það eru einhverjar uppákomur hjá ykkar félögum.

Við munum finna einhvers konar kerfi á því hvernig miðunum er útdeilt núna á næstu dögum, upp á það hvort fjölskyldur geti skráð sig gegnum vefinn eða hvort við skiptum leikjum á milli aðildarfélaga til að úthluta miðum.

Við hlökkum mikið til og vonumst til þess að þetta geti bæði vakið vitund fólks á hópi langveikra barna en einnig að sem flestir krakkar og fjölskyldur geti notið.

E. Sigurðsson ehf. og Stjarnan kynna með stolti Umhyggjuhöllina.

Í dag, fimmtudaginn 24. nóvember mun E. Sigurðsson ehf. byggingarfélag, skrifa undir samning við körfuknattleiksdeild Stjörnunnar sem einn af aðalstyrktaraðilum liðsins. Fyrirtækið mun samhliða því styðja við Umhyggju, félag langveikra barna, með margvíslegum hætti í tengslum við samninginn m.a. með því að gefa heimavelli Stjörnunnar, í íþróttahúsinu við Ásgarð, nafnið Umhyggjuhöllin félaginu til heiðurs.

Á komandi leiktíð munu Stjarnan, E. Sigurðsson ehf. og Umhyggja sameina krafta sína og standa fyrir skemmtilegum viðburðum og fjáröflunum. Umhyggju verður jafnframt úthlutað glerstúka á vellinum til einkanota fyrir félagsmenn sína.

Starf Stjörnunnar er algjörlega ómetanlegt á sviði forvarna og uppeldis ungra Garðbæinga við holla og uppbyggjandi íþróttaiðkun. Jafnframt vinnur Umhyggja aðdáunarvert starf við að styðja við langveik börn og aðstandendur þeirra með skilvirkum og fjölbreyttum hætti þegar á reynir og eiga stallinn svo sannarlega skilið.

„Við erum stolt af því að styðja við bakið á frábæru starfi innan körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar og á sama tíma nýtum við tækifærið og veitum Umhyggju aukin sýnileika í gegnum þennan frábæra vettvang. Okkur þykir brýnt í starfsemi okkar að huga að samfélagslegri ábyrgð. Við vonumst einnig til að þessi einstaki og skemmtilegi samningur verði fordæmisgefandi fyrir önnur fyrirtæki.“– segir Eyjólfur Fannar Eyjólfsson, framkvæmdastjóri E Sigurðsson. ehf.

Það er mikið fagnaðarefni fyrir deildina að koma að þessu einstaka verkefni með E. Sigurðsson ehf og Umhyggju. Félagið stendur okkur í Stjörnunni nærri þar sem dóttir sjúkraþjálfara mfl karla hefur notið stuðnings eins af aðildarfélögum í sinni baráttu. Samstarfið gengur út á gera starfsemi Umhyggju, sem er að vinna ómetanlegt starf í þágu langveikra barna, sýnilegri og ekki skemmir fyrir að geta boðið skjólstæðingum félagsins uppá stúku til eigin afnota þar sem ekki geta allir mætt á leiki og sest á áhorfendabekkina með okkur hinum.“ -segir Hilmar Júlíusson formaður kkd Stjörnunnar.

Fyrsti heimaleikur Stjörnunnar í Umhyggjuhöllinni er í Subway deild karla í kvöld gegn Grindavík í kjölfar undirritun samningsins og hefst hann kl 18:15. Hvetjum við alla, unga sem aldna til að mæta á leikinn og styðja Stjörnumenn til sigurs.

E. Sigurðsson ehf. mun áheita 1000 kr. af hverju skoruðu stigi Stjörnumanna í leiknum til styrktar Umhyggju og skorum við því á Stjörnumenn að hámarka stig sín og sýna hvað í þeim býr.

Eyjólfur Fannar Eyjólfsson, framkvæmdastjóri E. Sigurðsson ehf.

Hilmar Júlíusson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar

Með bestu kveðjum,

Árný Ingvarsdóttir

Framkvæmdastjóri

Háaleitisbraut 13

108 Reykjavík

Sími: 552-4242

arny@umhyggja.is

www.umhyggja.is